Smjörsteiktar Risarækjur Með Hvítlauk Og Ferskum Aspas
  1. Hitið 1 msk olíu og 1 msk af smjör á pönnu. Steikið aspasinn í c.a. 4-6 mín eða þar til hann er farinn að mýkjast vel upp. Kryddið hann til með salti,pipar og smá chilli. Takið aspasinn til hliðar af pönnunni.

  2. Notið sömu pönnu og bætið 2 msk af smjöri á pönnuna. Steikið rækjurnar upp úr smjörinu í 2 mín og kryddið til með salti og pipar. Bætið hvítlauknum, ítalska kryddinu og hvítlauksduftinu á rækjurnar og steikið áfram í 1 mín. Bætið þá grænmetissoðinu og Sriracha sósunni saman við. Leyfið soðinu að sjóða niður í um 1 mín.

  3. Ýtið rækjunum til hliðar á pönunni og bætið aspasnum aftur á pönnna. Veltið þeim vel upp úr sósunni og kreistið sítrónu yfir allan réttinn. Leyfið þessu að hitna vel og berið síðan fram með steinselju/kóríander, sítrónusneiðum og chillikryddi( má sleppa).

Course🍽️Main Course

Diets🌾Gluten-free...

Category🐟Seafood

CuisineIcelandic

Occasions📆Everyday🎉Special Occasion

Season🌸Spring

DifficultyEasy ⏰ 20m

Loading...