Risarækjur í rjómasósu
  1. Saxið laukinn smátt og steikið í olíunni ásamt rækjunum þar til laukurinn er orðinn glær og rækjurnar fallega bleikar.

  2. Takið rækjurnar frá og bætið smjöri, dijon sinnepi og rjóma úti og látið malla þar til sósan fer að þykkna. Þykkið með sósujafnaranum ef þarf.

  3. Bætið rækjunum aftur út í og kryddið með salti og pipar.

  4. Saxið steinseljuna og dreifið yfir og berið fram með hvítlauksbrauði.

Course🍽️Main Course

DietsPescaterian🥜Nut-free...

CategorySeafood Dish

CuisineIcelandic

Occasions🍽️Dinner Party🎉Special Occasion

Season🔁Year-round

DifficultyEasy ⏰ 20m

Loading...